Tvenn göng 2012, vegagerð fyrir 6,5 milljarða króna flýtt

Mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar aflaheimilda

10.7.2007

Í framhaldi af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um skerðingu á aflamarki á næsta fiskveiðiári hefur hún ákveðið að flýta vegaframkvæmdum á ellefu stöðum á landinu. Alls á að veita 6,5 milljörðum króna umfram það sem áður hafði verið ákveðið í þessar flýtiframkvæmdir árin 2008, 2009 og 2010.

Samgöngubætur leiða til langtíma vaxtar og velmegunar líkt og tiltekið er í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um dreifingu aflamarks á byggðarlög og hugsanlegar afleiðingar samdráttar í þorskafla sem unnin var fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Með því að flýta samgönguframkvæmdum er leitast við að draga úr áhrifum samdráttar í fiskveiðum um leið og ráðist er í margvíslegar tímabærar framkvæmdir sem til þessa hafa verið á langtímasamgönguáætlun en er nú flýtt verulega.

Framkvæmdirnar eru flestar þegar inni í samgönguáætlun en eitt nýtt verkefni bætist við, endurbættur vegur um Öxi. Með þessari ákvörðun er unnt að hefja á næstunni undirbúning þessara verkefna og má gera ráð fyrir að hægt verði að auglýsa útboð á næstu misserum.

Fjárheimilda verður aflað eftir því sem við á ásamt því að verkefnin munu koma fram í tillögum um breytingar á samgönguáætlun sem lagðar verða fyrir Alþingi í haust. Tekið skal fram að engum framkvæmdum verður seinkað vegna þessara breytinga. Einnig er vakin athygli á því að á öllum þeim svæðum sem hér er átt við eru margvíslegar vegaframkvæmdir ýmis hafnar eða í sjónmáli á þessu ári.

 

Flýtiféð skiptist þannig:

Árið 2008 1.530 milljónir króna.

Árið 2009 2.150 milljónir króna.

Árið 2010 2.820 milljónir króna.

Suður- og Suðvesturland:

Suðurstrandarvegur. Veita á rúmlega 1400 milljónum króna til vegarins árin 2008, 2009 og 2010 sem þýðir að unnt verður að ljúka veginum árið 2010 í stað 2015 til 2018 eins og áformað var. Vegurinn er mikilvægur fyrir sjávarútvegsbyggðirnar í Grindavík og Þorlákshöfn og skapar möguleika á samstarfi og vexti.

Vesturland:

Fróðárheiði. Tveimur köflum er ólokið, milli Egilsskarðs og Sæluhúss og milli Valsvatns og Útnesvegar. Með 600 milljóna króna fjárveitingu er stefnt að því að vinna við lokaáfanga geti hafist árið 2009.

 

Vestfirðir:

Vestfjarðavegur. Flýtt verður framkvæmdum í sunnanverðum Þorskafirði og milli Vattarfjarðar og Vatnsfjarðar. Með því verður vegasamband milli suðurhluta Vestfjarða og höfuðborgarsvæðisins komið í nútímalegt horf árið 2010 nema á veginum milli Vattarfjarðar og Kjálkafjarðar þar sem ólokið er umhverfismati vegna þess kafla.

Göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi Arnarfjarðarganga fyrir samgöngur milli suður- og norðurhluta Vestfjarða. Gert er ráð fyrir að flýta framkvæmdum þannig að göngum megi ljúka árið 2012 í stað 2014 og um leið verði ráðist í vegabætur á Dynjandisheiði. Gert var ráð fyrir 3,8 milljarða fjárveitingu árin 2011 til 2014 skv. tillögu að langtímasamgönguáætlun en gert er ráð fyrir einum milljarði króna verði veitt í verkið árin 2009 og 2010.

Strandavegi milli Hólmavíkur og Drangsness verði að mestu lokið með bundnu slitlagi árið 2009. Þannig er stuðlað að því að byggðin verði eitt atvinnusvæði.

 

Norður- og Austurland:

Tengingum Raufarhafnar og Þórshafnar við hina nýju Hófaskarðsleið yfir Melrakkasléttu verður flýtt og henni lokið árið 2010.

Norðfjarðargöng. Veita á alls 2,3 milljörðum til ganganna árin 2009 og 2010 en fyrstu fjárveitingar voru áætlaðar á árunum 2011 til 2014. Með þessu er stefnt að því að göngin verði tilbúin árið 2011.

Dettifossvegur. Þótt þessi vegur tengi ekki sjávarbyggðir er hann mjög mikilvægur fyrir vöxt og viðgang annarrar atvinnustarfsemi á þessu svæði þar sem sjávarútvegur þarf að láta undan síga. Ljúka á veginum 2010.

Axarvegur. Vegur um Öxi er talinn hafa mikla þýðingu fyrir sjávarbyggðir á sunnanverðum Austfjörðum og hefur núverandi vegur þegar sýnt það. Hér er áformuð mun betri tenging Djúpavogs við Hérað og jafnvel Breiðdalsvíkur og Hafnar við Mið-Austurland sem skapar þessum byggðarlögum verulega aukna möguleika til vaxtar. Stefnt að verklokum árið 2010.